|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|
03.08.2007 00:43:54 / wrawrr
Jæja.. Læt vaða hérna eina færslu..
Kannski
líka kominn tími til. Barnið mitt stækkar og stækkar, og verður
alltaf sætari og sætari! Hann er búinn að bræða marga með því að
segja fólki hvað kusa segir.. Hann segir muuuu og varirnar fara
yfir nefið... Hann er líka farinn að hlaupa útum allt, þannig
ég er á eftir honum að bjarga dótinu mínu. Samt er eiginlega orðið
fokhelt í meters hæð!
Núna er
Passatinn minn til sölu, og ég komin á Yaris.. Já ég veit, Ha Unnur
á Yaris?? Þetta eru bílar sem ég sagðist aldrei ætla að kaupa!
Ennnn, þetta er alveg nógu stórt fyrir okkur.. Það er reyndar
ekki neitt skott á þessari útskornu kókdós..! En þetta er
skítsæmilegt tæki..
Eitt finnst
mér alveg magnað... Fasteignaverðið fer ótrúlega hratt hækkandi..
Ég keypti íbúðina í mars, fékk afhent í maí, og íbúðin er búin að
hækka um 2millj.... Reyndar er alveg einstaklega flott útsýni úr
íbúðinni minni.. Ég get setið tímunum saman og horft út um gluggan!
Þetta er aðeins öðruvísi en á Hvolsvelli, þar er útsýnið yfir í
næsta eldhúsglugga hjá nágrannanum.. heh.
Gott í
bili.
Unnur NM
382
»
02.06.2007 23:02:54 / wrawrr
Hah!!
Það var gerð heiðarleg tilraun að fara með
barnið í dýragarð í dag.. Það var vaknað um 11 leitið í
morgun, og það fyrsta sem ég gerði var að henda mér út í
sólbað. Það var ekki langur tími, því við ákváðum að fara í
þennan bíltúr.. Erum með einhvern algjörlega viðbjóðslegan
bílaleigubíl sem er af tegundinni SEAT IBIZA... Hvað er það
eiginlega!? En já, ég kom með þá uppástungu (sem ég sé eftir
núna hah) að fara smá svona sveitaveg... Þessi dýragarður
er í borg sem heitir Murcia sem er ekki langt frá héðan sem
við erum. Það tekur heilbrigt fólk kannski klukkutíma að fara
þangað ef það fer hraðbrautina. Mín bara eh "æi mér finnst
það svo heillandi að fara svona smá "shortcut" í gegnum öll
litlu þorpin.. Heheh! Ég sat afturí og var svona "backseat
driver" með túristakortið alveg upp fyrir haus!! Og ég veit
ekki hversu oft það voru teknar vitlausar beygjur og tautað
eftir því! Hmm.. Ok, svona 2 og hálfum tímum síðar komum
við loksins til Murcia.. Allt Unni að þakka hahahah.. Já,
þessi borg er alveg nokkrir kílómetrar í allar áttir þannig
að þá tók annað eins við.. Ég tók upp kotið og ég var búin að
taka mynd af öðru korti sem ég var með heima, og var að
rembast við að súma inn á myndavélinni til þess að sjá hvar
við værum... Eftir að hafa farið yfir á nokkrum rauðum ljósum
láta næstum keyra okkur niður og jú keyra í vegfyrir
lögregluna þarna.. (aðeins fyndnara það, þeir skildu ekki
baun í ensku og við bara töluðum og töluðum við hann um að
við værum túristar sem væru villt, og gaurinn bara ohh
"tourists" just leave) heheheheh! Loksins komumst við í
þennan dýragarð.. Þetta er svona garður sem þú labbar bara um
og skoðar dýrin. Þetta er mjög stórt svæði sem þetta er á,
hringurinn er um 5km.... Og það er ótrúlega mörg skemmtileg
dýr sem eru þarna (meðal annars rjúpa og tjaldur) eitthvað
sem maður sér einstaka sinnum heima.. Þegar við vorum búin
að skoða öll dýrin, langaði mig að kíkja í STÓÓÓRA IKEA sem
er þarna líka.. Eins gáfuð og við erum, þá lentum við útá
hraðbraut á leið í einmitt hina áttina hehehehe... Ég alveg
brjál aftrí. Sagði honum að snúa við og fara uppá brú sem
væri þarna til þess að komast að þessu.... Jújú, hann hlýddi.
Bíddu neinei, þá var bara ekki afrein þangað, þannig við
vorum bara komin aftur útá hraðbraut og þurftum að keyra 20km
til þess að geta snúið við! Klukkutíma síðar vorum við að
leggja bílnum fyrir utan IKEA í Murcia. Vorum þar inni hátt í
2 klukkutíma... Margt þar sem er ekki á Íslandi.. Klukkan
hálf tíu á staðartíma lögðum við af stað heim aftur. Ég fékk
engu ráðið um hvaða leið yrði tekin heim.. Hraðbraut dauðans
var valin, og ég fékk ekki að segja múkk á leiðinni hehemm..
heimferðin tók okkur 45mín..
Þetta segir bara, að ekki láta mig vera með
kort þegar kemur að því að þurfa að rata eitthvert! Ég er
glötuð í því..
Það var alveg endalaust mikið hlegið í
þessari ferð okkar í dýragarðinn.. Gæti skeð að ég skelli inn
myndum frá þessum degi við
tækifæri..
Jæja ég ætla að fá mér góðan kokteil fyrir
svefninn..
Ciao amigos...
»
30.05.2007 21:57:47 / wrawrr
Jæja. Þá loksins gefur maður sér tíma og sest á rassgatið og
skrifar örfá orð.
Það er búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið.
- Ég fékk afhent íbúðina á Álftanesinu 14.maí, þurfti að byrja á
því að fá fullt af fólki að hjálpa mér að þrífa. Hún var
viðbjóður!!
- Ég og minn her byrjuðum á að þrífa holunna.
- Það var flutt inn með látum 16.maí eftir að hafa verið að þrífa
í 12 tíma. Og allt var þrifið, meira að segja veggir og loft!!
ALLT!!
- Svo var bara að drífa sig að byrja að taka uppúr kössum, þufti
að halda uppá afmæli 20.maí!!
- Björn Andri litli strákurinn minn var 1árs 19.maí!!
- Það var haldið uppá þessa svakalegu veislu í Birkiholtinu á
Álftanesinu...
- Úff!! Frekar þreytt eftir að hafa verið á fullu að koma manni
fyrir á þessum stutta tíma sem maður hafði..
ENNnnnn neibb... Drífa sig í að pakka ofaní töskur, því að 23.
er skutlað sér til spánar og þar verður slappað af!!
Ég er svona frekar löt eftir þetta brjálæði allt saman..
Er núna á spáni í geggjuðu veðri.. Í dag var 37 stiga hiti og
GLAMPANDI SÓL, mín reynir að vera dugleg við að liggja á bekk og
sleikja gula fíflið.. 
Svo til að toppa þetta allt saman. Þá eldist ég bara og eldist..
Varð tuttuguogeins í gær og núna ætla ég að hætta að
telja..
Jæja.. Klukkan hérna er um miðnætti og ég er bara að pæla í að
fara að leggjast á sólbekkinn þarna inní svefnherbergi og liggja
þar þangað til að maður vaknar til þess að maka á sig olíu og
leggjast aftur..!! 
Læt þetta duga í bili..
Unnur sólarsleikja!
»
21.04.2007 16:59:11 / wrawrr
Jæja.. þá er ég að mestu leiti komin til Reykjavíkur.. Það er
samt eitthvað eftir af drasli heima á Hvolsvelli enþá..
Björn Andri minn er frekar veikur núna.. Hann flakkar á milli 38
og 40 í hita... Annars hef ég það bara ágætt hérna.. Pínu skrítið
að hugsa um að ég fari ekkert "heim" aftur, enn það á vonandi eftir
að lagast...
»
15.03.2007 20:32:31 / wrawrr
Ég er að flytja frá Hvolsvelli!
Það er ekki svo langt síðan að ég var að hugsa hvernig ég ætti
að mála forstofuna mína.. Var búin að lofa sumum bjór gegn því að
hjálpa mér í þessum málum... Ennnnn vá hvað hlutirnir geta gerst
hratt!.. Fæ lyklana 14.maí, þannig ég verð að drífa mig í að
redda mér kössum og byrja að pakka... Því ég á alveg óendanlega
mikið af drasli!!! Fæ kannski suma til þess að hjálpa mér í að
koma þessu dóti í kassa.. Okok.. ég skal eiga bjór!! Any
way..
Íbúðin er á Álftanesi... Hérna kemur lýsingin..
94,0 fm íbúð á 3 hæð ( efstu) í nýju glæsilegu fjölbýlishúsi.
Sérinngangur af svölum. Íbúðin er fullbúin á mjög vandaðan hátt,
með vönduðum gólfefnum. Hún skiptist í góða forstofu með skáp, 2
ágæt svefnherb. með skápum, gott þvottahús, glæsilegt baðherbergi
með baðkari og innréttingu, stofu með útgengi á rúmgóðar suðaustur
svalir með glæsilegu útsýni. Eldhús með vandaðri eikarinnréttingu,
granít á borðum. Vandaður háfur í eldhúsi. Vandað eikarparket á
góflum, nema á gangi forstofu og eldhúsi er náttúrusteinn. Glæsileg
sérhönnuð lýsing í allri íbúðinni frá GÁ ljósum. Á fyrstu hæð er
sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Eign í
sérflokki.
Mig hlakkar nú alveg ótrúlega mikið til að komast á nýjan stað..

Jæja ég er farin að pakka..
»
21.02.2007 21:39:38 / wrawrr
Já... Ég er bara að pæla í að nenna þessu ekki lengur..
Og í guðanna bænum stelpur eða kerlingar! Plz takiði því sem
hrósi þegar eh segir við ykkur að þið séuð með stór brjóst!! Annað
er bara silly! ok!
»
01.02.2007 02:07:55 / wrawrr
1.Miðnafnið þitt?
2.Aldur
3.Single og Taken
4.Uppáhalds bíómynd
5.Uppáhalds lag
6.Dirty or Clean
7.Tattoo eða Göt
8.Þekkjumst við persónulega?
9.Hver er tilgangurinn með lífinu?
10.Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig
máli?
11.Besta minning þín um okkur?
12.Myndir þú gefa mér nýra?
13.Segðu eitthvað skrítið um þig:
14.Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
15.Getum við hist og bakað köku?
16.Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
17.Finnst þér ég góð manneskja?
18.Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum
landið?
19.Finnst þér ég aðlagandi?
20.Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
21.Í hverju sefuru?
22.Kæmiru í heimsókn bara af tilefnislausu? Bara að
chilla?
23.Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða
þér?
24.Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?
»
31.01.2007 19:40:10 / wrawrr
Hellú...
Ég hef ekki gefið mér tíma í að koma hingað og skrifa eh.. Ehe er
bara eh löt við það..
Enn það er svosem ekkert að frétta af mér nema allt gott.. Er
ofvirk þegar kemur að hreyfingu núna þessa dagana..  Ég, Maren og
Tinna fengum okkur smá göngutúr í átt að Hellu á sunnudaginn
síðasta.. hehe það varð aðeins lengra en við ætluðum..  Tinna var
komin með ó ó þegar við vorum komnar að Strönd, þannig hún hringdi
og lét sækja sig.. En ég og Maren héldum áfram..  Það var orðið
ansi dimmt þegar við vorum komnar að Varmdal sem er ca 2km frá
Hellu.. heheheh... Við vorum HUNDBLAUTAR og SEXÝ eftir þennan dag.

Verkir í rassi? Nei er það nokkuð.. Erum með svo vel þjálfaða..
Hahahah
Ekki
meira bull í bili.. Ble
Unnur
»
01.01.2007 18:39:42 / wrawrr
Gleðilegt nýtt ár góðir hálsar!!
Ég nenni ekki að skrifa neitt núna nema að það var rosalega gaman í
gær!!
Tinna mín hvað varð um þig?? Sá þig ekkert á þessu balli.. Eða í
þann tíma sem ég var þarna!! 
»
24.12.2006 03:31:51 / wrawrr
Gleðileg
Jól
Hafið það gott
um jólin!!
»
20.12.2006 23:03:03 / wrawrr
Hellú...
Ég fór í svokallað eftirlit hjá lækninum í dag.. Þarf alltaf að
mæta 1-2x í mánuði til þess að láta mæla mig.. Ég rabbaði við Gumma
lækni í þónokkrun tíma.. Hann spurði mig um allt milli himins og
jarðar!! Svo komumst við að einu um mig...  Þetta er eitthvað sem
mig hefði aldrei dottið í hug með mig!!! Ég!!! Nei.. Ég er enn að
ná þessu.. Hann tók blóðprufu hjá mér og sagði svo, ég verð í
sambandi við þig 29.desember... Þannig ég verð bara að gjöra svo
vel að bíða þangað til...
Ég ætla að hugsa aðeins meira um þetta.. Hvernig kom þetta fyrir
mig??'
»
13.12.2006 22:14:22 / wrawrr
Veit ekki alveg afhverju ég er með þessa síðu...
Ég kann akkurat ekki neitt að blogga og er versti penni sem til er
á jarðríki held ég barasta!!
Björn Andri litla elskan mín er farinn að segja mamma!!  Hann
segir reyndar mamama sem er bara sætast!!
Hann segir líka baba
en mikið minna.. Hehe... Hann er bara yndislegur.. Ég vissi ekki að
það væri hægt að elska svona heitt.. Mig svíður bara!!! Hann er að
verða 7mánaða núna á þriðjudaginn... Þetta líður alveg hrikalega
hratt!!
Jæja ætla að fara að reyna að rífa dúkinn af eldhúsgólfinu.. Er að
fara að flísaleggja! Úff
Good luck!!
UnnZí
»
22.11.2006 11:31:45 / wrawrr
Jæja mín er bara að fara út í nótt!!!
Ég er að fara til Kaupmannahafnar að missa mig í búðunum!!!!
Heyrumst !
Unnzí
»
20.11.2006 22:51:04 / wrawrr
Hæhæ..
Vildi bara segja ykkur það að strákurinn minn Björn Andri varð
6mánaða í gær!!
Þetta líður ótrúlega hratt!!
Til hamingju strákurinn hennar mömmu
Bless í bili..
»
Síður: 1 2
|
|